DotNetNuke er vefumsjónarkerfi sem nota má með nánast hvaða vefstuddum hugbúnaði eða vefsetri/vefgátt sem er.
Uppruna útfærslunnar má rekja til Shaun Walker frá Perpetual Motion Interactive Systems Inc.í janúar 2002.
Er hún viðbót við IBuySpy, sem hét upphaflega IBuySpy Workshop sem var hannað af Microsoft en var gefið út og allur aðgangur að kóða á þessum tíma.
DotNetNuke samfélagið samanstendur af þróunarfólki með margvíslegan bakgrunn, stjórn, innri kjarna (Inner Core) og ytri kjarna (Outer Core).
Notendur vefsíðu DNN (www.dotnetnuke.com) eru rúmlega 355,000 og heimsóknir þangað yfir ein milljón á mánuði. Skráðar síður gegnum Google er yfir 4.460.000
- Opið aðgangsleyfi (BSD)
- Fjölgátta útfærsla
- Öryggisaðgangur eftir hlutverkum – starfsfólk þjónustar sig sjálft
- Sveigjanleg útlitshönnun með hamskiptum (Skinning)
- Breyta má innihaldi með innskoti (inline) og textaleit er möguleg
- Ýmis verkfæri fylgja með – skýrslur um heimsóknir, fjöldapóstur, skráastýring
- Vinaleg vefföng (Friendly URLs)
- 21 kerfiseiningar innbyggðar í kjarna.
- Hundruð utanaðkomandi eininga fyrirliggjandi (gegn greiðslu eða ókeypis)
- Notar Patterns & Practices Group tilhögun. Provider Pattern notað á víðtækan hátt
- Framúrskarandi hugbúnaðarútfærsla – stækkanlegt með einingum
- Notar ASP.Net 2, notanda, aðild og forstillingar (profile)
- Stigfrjálst (scalable).
- Hraðvirkt – notar skyndiminni (cache)
- Windows authentication